Bloggfærslur mánaðarins, maí 2009 - evropa.blog.is
31.5.2009 | 16:37
Gengur krónan frá versluninni?
Frá RÚV: ,, Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir að það sé forgangsmál að ná stöðugleika í gengismálum eigi fyrirtækjum í landinu ekki að blæða út. Í þjóðhagsspá sem birt var á dögunum kemur fram að fjármálaráðuneytið gerir ráð fyrir því að krónan haldist áfram jafn veik fram til ársins 2011. Þá er gert ráð fyrir að hún styrkist um 8%."
Lesa : http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item274914/
Hlusta: http://dagskra.ruv.is/ras2/4435677/2009/05/31/3/
Aths. bloggara: Gengi íslensku krónunnar hefur fallið um tugi prósenta gagnvart öðrum gjaldmiðlum, þannig að styrking krónunnar upp á 8% árið 20011(!) getur varla talist mikil styrking.
Fyrir nákvæmlega tveimur árum kostaði EVRA 83.50, dollari tæpar 62 kr. og Yenið var á 0.50!
Svona er staðan í dag:
Bandaríkjadalur USD 122,97 123,55 123,26
Sterlingspund GBP 198,78 199,74 199,26
Kanadadalur CAD 111,6 112,26 111,93
Dönsk króna DKK 23,285 23,421 23,353
Norsk króna NOK 19,409 19,523 19,466
Sænsk króna SEK 16,203 16,297 16,25
Svissneskur franki CHF 114,65 115,29 114,97
Japanskt jen JPY 1,2822 1,2896 1,2859
SDR XDR 190,27 191,41 190,84
Evra EUR 173,38 174,36 173,87
www.evropa.is
Bloggari vill vekja athygli á vefsíðu Evrópusamtakanna, www.evropa.is. Þar er að finna hátt í 100 greinar sem tengjast umræðunni um ESB og Evrópumál. Höfundar eru fjölmargir og er greinunum skipt í flokka, eftir umfjöllunarefnum.
30.5.2009 | 13:39
Bændablaðið stútfullt af ESB
Og meira um bændur, nú rjúkandi ferskt Bændablað, 10. tbl. Stór hluti þess fjallar um ESB, heilu síðurnar eru lagðar undir ESB-umfjöllun. Á forsíðu er t.d. ítrekuð sú afstaða bænda að þeir séu eindregið gegn aðild Íslands. Bændur vilja ekki einu sinni ræða við sambandið; ,,Búnaðarþing 2009...hafnar aðildarviðræðum við sambandið." (samþykkt Búnaðarþings 2009). Er þetta lýðræðislegt sjónarhorn?
Þá er á síðu tvö viðtal við norska ,,sérfræðinginn" Dag Seierstad,sem fluttur var hingað innum daginn á vegum Heimssýnar (Nei-samtaka Íslands). Fyrirsögn viðtalsins er ,,Engar undanþágur í boði hjá ESB." Halló! Finnar fengu undanþágu fyrir landbúnað, Maltverjar fengu undanþágu fyrir sjávarútveg, Danir fengu undanþágu fyrir fjárfestingar erlendra aðila í dönskum sumarhúsum, svo eitthvað sé nefnt. Álendingar fengu svipaða undanþágu. Þetta er því rangt hjá Seierstad. Og undanþágur fást í samningaviðræðum, ekki fyrirfram. Þetta eru því getgátur.
Þá segir hann að Norðmenn muni ekki "elta" Ísland inn í ESB, gangi Ísland í sambandið, ,,aðild Íslendinga væri ekki nógu mikilvæg til þess." Athyglisvert orðalag! Bloggari segir bara: Ísland er ekki að spá í umsókn til þess að Norðmenn gangi líka inn. Möguleg íslensk aðild er með íslenska hagsmuni að leiðarljósi.
